Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla á lóð Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur (FBSR)
Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Flugbjörgunarsveitin Reykjavík, Flugvallarvegi, 102 Reykjavík, s. 551 2300, [email protected].
Tilgangur vöktunarinnar: Í öryggis- og eignavörsluskyni.
Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna FBSR af öryggis- og eignavörsluástæðum, sbr. 6. tölul. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Tegundir persónuupplýsinga: Myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.
Viðtakendur: Allt myndefni er aðgengilegt kerfisstjóra FBSR sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Réttindi einstaklinga: Einstaklingar geta átt rétt á að fá afrit af myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.