Leitarflokkur hefur á að skipa þeim aðilum sem hafa sérhæft sig í leitartækni og er sá hópur sem fyrstur er kallaður út þegar um leit að fólki á sér stað. Hlutverk leitarhóps er þá að framkvæma sérhæfð leitarverkefni og beita til þess fagkunnáttu sinni.
Hvað er leitartækni?
Leitartækni er ansi víðfeðm fræðigrein og erfitt að lýsa henni í fáum orðum, en kannski má lýsa henni sem „aðferðarfræði við að finna týnt fólk eða týnda hluti með þeirri aðferð og tólum sem þykir skynsamlegast hverju sinni“.
Leitartækni er ungt fag á Íslandi en hefur þegar margsinnis sannað gildi sitt við að tryggja fagmennsku í leit að týndu fólki og hefur skilað sér í markvissari vinnubrögðum. Gott samstarf er á milli leitarhópa björgunarsveitanna og lögreglunnar.
Meðal þeirra atriða sem fagmenn í leitartækni kunna skil á er ákvörðun og uppsetning leitarsvæðis, sporrakningar, hópstjórn, hegðun týndra, leit í mismunandi landslagi, leit að fórnarlömbum ofbeldismanna (unnið með lögreglu) og margt fleira.
Flugbjörgunarsveitin kennir nýliðum sínum grunnnámskeið í leitartækni og sendir árlega félaga á Fagnámskeið í leitartækni hjá Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.