Bresk skúta sendi frá sér neyðarkall í gær þar sem hún hafði fengið á
sig brotsjó og óttaðist áhöfnin að leki væri kominn að skútunni.
Vegna
þessa var flugvél Landhelgisgæslunnar, TF SYN, kölluð út og fóru þrír
aðilar Flugbjörgunarsveitarinnar með í útkíkk. Vel gekk að finna
skútuna þar sem hún var stödd innan íslensku efnahagslögsögunnar djúpt
suðaustur af landinu. Þrátt fyrir að bæði stýri og seglbúnaður hafi
brotnað taldi þriggja manna áhöfn skútunnar að hún gæti gert við
skemmdirnar til bráðabirgða og siglt henni áfram til Skotlands. Var
því flugvél Landhelgisgæslunnar snúið við.