Sex fræknir og frískir stokkvarar Anna lára, Atli, Heiða, Maggi Zig, Matti og og að sjálfsögðu Snorri. Smelltu sér í stökkgallan, reifuðu á sig ryggin og héldu upp í vél fimmtudaginn 13.oktober Með voru tveir tilvonandi stökkvarar Guðgeir og Daníel.
Farið var með fokker 50 vél Landhelgisgæslunnar frá flugvellinum í Vatnsmýrinni. Stefnan var sett á 8000 fet en í 8000 fetunum reyndist of mikill þrýstingur svo ekki var hægt að opna vélina. Flugið var þá lækkað í 5500 fet, í þeirri hæð yfir Sandskeiði var ekkert annað hægt að en að þrusa sér út úr vélinni og fljúga um loftin blá í frábæru frjálsu falli. Um það bil 2000 þúsund fetum neðar var kippt í spottann og fallhlífin opnuð. Við tók svo skemmtilegt flug á fallhlífinni sem endaði með lendingu og breiðu "Sólheimaglotti" á Sandskeiðinu.
Heiða að æfa artsið
Anna Lára klár í slaginn
Kominn fiðringur í dömurnar
Karlarnir þykjast vera svalari
Maggi stálmús
Atli á síðustu mínútu fyrir brottför
Jumpmasterinn lentur og lítur eftir krílunum sínum
sem svífa niður eitt af öðru
Matti, Atli, Maggi, Heiða, Snorri og Anna Lára
Allir háloftaflubbarnir lentu semsagt sjúklega glaðir og ánægðir með stökkið!!
Viljum við þakka Landhelgisgæslunni kærlega fyrir okkur
– Heiða