Elsa Gunnarsdóttir
Fullt nafn: Elsa Gunnarsdóttir
Gælunafn: Elsa
Aldur: 28
Gekk inn í sveitina árið: 2000
Atvinna/nám: Starfa hjá Glitni
Fjölskylduhagir: Ég á einn kærasta
Gæludýr: Engin
Hópastarf og annað starf innan sveitarinnar: Ekki mikið eins og er en ferðin um helgina í Þórsmörk var frábær!!:)
Áhugamál: Útivist, ferðalög, matur.
Uppáhalds staður á landinu: Sumarbústaðurinn í Grímsnesinu
Uppáhalds matur: Rjúpur og svið.
Mesti viðbjóður sem þú hefur smakkað: Lifrabuff sem mamma píndi í mig þegar ég var yngri, annars er allar matur góður, bara misgóður!
Ef þú ættir eina ósk, hver yrði hún (bannað að óska sér fleiri óska)? Komast á snjóbretti á flott skíðasvæði í evrópu í allavega tvær vikur hvern vetur!
Æðsta markmið: Að gera allt sem mig langar að gera.
Eftirminnilegasta augnablikið úr starfinu: Nýliðaferð í Skarðsheiði þar sem við gistum í snjóhúsi í brjáluðu veðri og það snjóaði fyrir opið og við þurftum að grafa okkur út um morguninn og ennþá var brjálað veður.
Hreindýraakstur í Noregi, vetur 05.
Með Hornbjargsvita í baksýn, júlí 06.
Labbaði Dettifoss – Ásbyrgi um verslunarmannahelgina 06. Ásbyrgi í baksýn!:)
Við Langasjó, sumar 06.
Með Sveinborgu í Chamonix, vetur 06.
Á snjóbretti í Nýja sjálandi, sumar (norðan miðbaugs) 04.