Laust fyrir klukkan fimm í dag barst útkall vegna Fokker Friendship flugvélar. Vélin var að koma inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli með 26 manns um borð. Óttast var að nefhjól vélarinnar hefði ekki farið niður og var þá strax sett í gang viðbragðsáætlun.
Þegar vélin nálgaðist flugvöllin kom í ljós að
óttinn var ástæðulaus. Öll hjól vélarinnar voru í lendingarstöðu og í
fullkomnu lagi. Þá höfðu aðeins liðið 10 mín. frá því að kallað var út.
Vélin lenti án nokkurra vandkvæða og var útkallið afturkallað áður en
björgunarmenn komust úr húsi.