Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík var haldinn með pompi, prakt og tveggja metra sætisbili þann 10. september sl. Í venjulegu árferði er aðalfundur sveitarinnar haldinn að vori en vegna sóttvarnaaðgerða síðastliðið vor var ákveðið að fresta honum til hausts.
Aðalfundurinn var haldinn á Hótel Natura, til móts við bækistöðvar FBSR í Öskjuhlíðinni, og þangað mættu ríflega 130 félagar. Að venju var farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikninga áður en komið var skemmtilegasta dagskrárliðnum, inntöku nýrra félaga. Árgangurinn var sérstaklega stór og öflugur í ár og inn gengu 28 nýir Flubbar. Hamingjuóskir fá bæði þau nýinngengnu og sveitin öll með frábæra viðbót við hópinn!
Loks voru kjörnir nýir fulltrúar í nokkrar stöður í stjórn, m.a. formannsembættið, og er stjórn FBSR starfsárið 2020-2021 skipuð eftirfarandi:
- Formaður: Viktor Örn Guðlaugsson
- Varaformaður: Sveinn Hákon Harðarson
- Gjaldkeri: Ingvi Stígsson
- Meðstjórnendur:
- Andrea Burgherr
- Ásta Ægisdóttir
- Leó Gunnar Víðisson
- Ólafur Magnússon
Um leið og við óskum nýjum stjórnarmeðlimum til hamingju með kjörið viljum við þakka fráfarandi stjórnarfólki fyrir vel unnin störf. Sérstakar þakkir fær Hjalti Björnsson, formaður FBSR 2017-2020, fyrir sitt stóra framlag í þágu sveitarinnar.
Ljósmyndir tók Jón Svavarsson.