Nýliðahóparnir B1 og B2 héldu í fyrstu sameiginlegu ferðina helgina 21.-23. febrúar. Lagt var af stað skammt norður af „horninu“ á Holtavörðuheiði í hæglætisveðri. Eftir smávægilegt strætóbras ákvað gönguskíðafólk að halda af stað í ferðina. Komið var að skálanum við Skútagil á þriðja tímanum um nóttina. Nýliðunum var boðin gisting í skálanum sem flestir þáðu en nokkrir úr B1 kusu tjaldið fram yfir skálann.
Laugardagsmorgun hófst með snjóbræðslu fyrir daginn og var síðan haldið í vesturátt að Krókavatnsskála. Hádegisverður var snæddur og hælar plástraðir í skálanum. Var svo haldið í SSV-átt, að Kjarrá, í meðvindi og sól. Ferðinni miðaði vel, svo vel að fararstjórar settu upp óvænta björgunaræfingu fyrir nýliðana á Krókavatni. Eftir vel heppnaða æfingu var haldið áfram að Kjarrá. Aftur var sett upp björgunaræfing á leiðinni og tveir nýliðar dregnir af hraustum mönnum um 3-4 km vegalengd á púlkum.
Undir sólsetur var tjaldbúðum komið upp og kvöldverður snæddur. Um kvöldið kíkti formaður beltaflokks á okkur en hann hafði verið skipaður á bakvakt. Nýliðarnir skriðu snemma ofan í svefnpoka og sváfu eins og ungabörn þessa nótt.
Sunnudagsmorgun hófst með snjóbræðslu sem gekk misvel hjá fólki. Gasið þurfti sérstaka ást og alúð í þessu frosti. Klukkan rúmlega 8 var hópurinn klár í göngu dagsins. Haldið var suður í meðvindi og blíðskaparveðri eftir Hólmavatni og niður Hallkelsstaðaheiði, uns snjó fór að þrjóta. Strætóinn beið eftir hópnum við Gilsbakka í Hvítársíðu og sá B2-liði um að aka til byggða.
Í tilefni af konudeginum fengu konurnar í hópnum frí frá frágangi og þrifum og gátu haldið örlítið fyrr heim með bros á vör.
Haukur Eggertsson og Elísabet Vilmarsdóttir