Nýliðakynningar Flugbjörgunarsveitarinnar fóru fram í vikunni í húsnæði sveitarinnar við Flugvallaveg og lagði fjöldi manns leið sína á bæði kvöldin. Allt í allt komu tæplega 100 manns samanlagt og var mál manna að tekist hefði vel upp. Haukur Ingi stjórnaði fundunum og fór yfir fyrirkomulag þjálfunarinnar með verðandi nýliðum, en auk þess sagði Auður frá upplifun sinni af síðustu tveimur árum í þjálfuninni. Þá voru nýliðaþjálfararnir kynntir, en þeir eru að þessu sinni Haukur Eggertsson og David Karnå.
Eftir að Haukur Ingi hafði lokið kynningunni var skipt upp í hópa og fór inngengnir með áhugasama um húsið, en inngengnir fjölmenntu á báða fundina sem var gaman að sjá.
Fyrrgreindir aðilar og þeir sem komu að kynningunni fá þakkir fyrir aðkomu sína að kvöldunum. Einnig verður gaman að sjá nýja nýliða á fyrsta fundi B1, en hann fer fram þriðjudaginn 3. september kl 20:00 í salnum að Flugvallavegi.
Póstur með nánari upplýsingum verður sendur um helgina eða á mánudaginn til þeirra sem skráðu sig. Þess skal getið að fólki er velkomið að mæta þó það hafi ekki komið á kynningarnar.