Miðvikudaginn 8. maí 2013 var aðalfundur FBSR haldinn í húsakynnum sveitarinnar að Flugvallarvegi. Á fundinum var tekinn inn fríður hópur 16 nýrra félaga, sem lokið hafa tveggja ára nýliðaþjálfun hjá sveitinni. Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að starfa með þeim í framtíðinni.
no images were found
Á fundinum var kosið í 6 embætti stjórnar:
Jóhannes Ingi Kolbeinsson, formaður
Kristbjörg Pálsdóttir, meðstjórnandi til eins árs
Björn J. Gunnarsson, meðstjórnandi til tveggja ára
Þorsteinn Ásgrímsson Melén, meðstjórnandi til tveggja ára
Magnús Andrésson, varamaður 1
Þráinn Fannar Gunnarsson, varamaður 2
Auk ofangreindra situr Jón Svavarsson áfram sem meðstjórnandi til eins árs. Á fundinum voru endurskoðendur sveitarinnar einnig kosnir, þeir Sigurjón Hjartarson, Guðmundur Magnússon og Grétar Felixson (til vara).
Samþykkt var lagabreytingartillaga sem hækkar lágmarksaldur nýliða úr 17 í 18 ár þegar þjálfun hefst, en veita má undanþágu fylli viðkomandi 18 ár á árinu.