|
miðvikudagur, 10 mars 2010 |
|
Um helgina fer B1 undir stjórn Stjána í Tindfjöll en ætlunin er að ganga á Ými og Ýmu. Á svæðinu hefur skv. línuritunum hjá veðurstofu verið rigning eða slydda uppá síðkastið og gönguskíði ekki mjög líkleg til árangurs.
B2 er ekki í ferð á vegum sveitarinnar um helgina en flestir ef ekki allir eru á leið norður á Akureyri til þess að taka þátt í Telemark festivali ISALP. Minnum á þátttökugjaldið og félagsgjaldið. |
|
|
þriðjudagur, 02 mars 2010 |
|
Um klukkan 11:30 voru undanfarar björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu kallaðir út vegna konu sem féll í sprungu mitt á milli Valabóls og Húsfells, rétt ofan við Hafnarfjörð. Konan sat föst á um 4-5 m dýpt. Konan var ásamt annarri á göngu á svæðinu og steig á snjó er huldi sprunguna með fyrrgreindum afleiðingum. Björgunarsveitamenn sigu í sprunguna eftir konunni og um klukkan 12:45 náðu þeir henni upp. Reyndist hún ómeidd. |
|
|
föstudagur, 26 febrúar 2010 |
|
Ellingsen hefur ákveðið að veita vélsleðaflokki Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík rekstrarstyrk til áframhaldandi góðra verka. Ellingsen er umboðsaðili Ski-Doo á Íslandi en Ski-Doo vélsleðar björgunarsveitarinnar komu mjög við sögu í erfiðri en árangursríkri leit á Langjökli aðfaranótt mánudagsins 15. febrúar. Sleðarnir stóðust með prýði mikið á lag við erfiðar aðstæður.
Björgunarsveitirnar okkar eiga alltaf að geta treyst á öflug og traust tæki við aðstæður sem þessar og hefur reynslan sannað öryggi og styrk Ski-Doo vélsleðanna svo um munar. Ellingsen er það sönn ánægja að geta orðið vélsleðaflokki Flugbjörgunarsveitarinnar að liði.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Flubbar fundu vélsleðafólkið á Langjökli |
|
mánudagur, 15 febrúar 2010 |
|
Um þrjú hundruð björgunarsveitamenn leituðu að skoskri vélsleðakonu og ellefu ára syni hennar á svæðinu í Langjökli næst Skálpanesi í gærkvöldi og fram á nótt. Veður var afleitt og skyggni aðeins fáir metrar. Sleðahópur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík tók þátt í leitinni og keyrði fram á mæðginin þar sem þau höfðu búið sér til skjól á bak við vélsleða sinn. Viðtal við Guðmund Arnar sleðamann og stjórnarmann Flugbjörgunarsveitarinnar má lesa á vef mbl.is. |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 10 - 18 af 227 |