|
miðvikudagur, 11 febrúar 2009 |
|
Helgina 13.-15. febrúar munu nýliðahóparnir ásamt fríðu föruneyti fara í gönguskíðaferð í Landmannalaugar. Allir félagar velkomnir með. Mæting kl 19.00 á föstudag. Tilkynna þátttöku til Steinars - steinarsig(hja)gmail.com. |
|
|
miðvikudagur, 04 febrúar 2009 |
|
Jónas Guðmundsson stendur fyrir námsskeiðinu ,,Hverju á ég von á?'' niðri í sveit þriðjudagskvöldið 10. febrúar kl. 20:00. Farið er yfir viðbrögð björgunarmanna við erfiðar aðstæður í tengslum við andlát eða alvarleg slys. Farið er yfir lykilatriði um öryggi björgunarmanna. Allir félagar velkomnir |
|
|
þriðjudagur, 03 febrúar 2009 |
|
Þriðjudaginn 3.febrúar verður félagakvöld. Að þessu sinni ætlar Bubbi að fræða okkur um hvernig best er að vinna botninn á skíðnum og hvað það felur í sér. Um að gera að mæta með skíðin.
Aðra helgina í febrúar er á dagskrá gönguskíðaferð þannig að það er um að gera að gera skíðin klár!
Gamanið hefst kl 20.00. |
|
|
fimmtudagur, 29 janúar 2009 |
|
Miðsvetrarfundur FBSR verður haldinn á Flugvallarveginum mánudaginn 2.febrúar.
Á fundinum verður farið yfir dagskrána fram á vor og rædd þau mál sem hvíla á félagsmönnum. Ekki verður lagður fram ársreikningur síðasta árs þar sem hann er enn í vinnslu.
Í hléi verður kvennadeildin með sínar margrómuðu veitingar sem að venju kosta 1000 krónur.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja,
Stjórnin |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 73 - 81 af 227 |