|
Frestun á leitartækniæfingu |
|
þriðjudagur, 24 mars 2009 |
|
Sökum óviðráðanlegra aðstæðna verður leitaræfingunni sem halda átti í kvöld frestað um óákveðin tíma. |
|
|
þriðjudagur, 17 mars 2009 |
|
Miðvikudaginn 18. mars ætlar Jökull Bergmann að snúa aftur til útungunarstöðvar sinnar og segja okkur frá því sem hann hefur verið að bralla síðustu misserin. Hvað felst í því að vera UIAGM-IFMGA fjallaleiðsögumaður og hvernig maður á að bera sig að í náminu og vinnunni.
Hefst klukkan 19:30. |
|
|
miðvikudagur, 11 mars 2009 |
|
Í kvöld klukkan 20 mun Íslenski Alpaklubburinn standa fyrir umræðukvöldi um öryggi á fjöllum. Til stendur að ræða snjóflóð, hrun, lélegar tryggingar í klifri og önnur efni eftir því sem þátttakendur bera upp. Hvetjum við alla sem vilja kenna sig við fjallamennsku til að mæta í Klifurhúsið og taka þátt, hlusta og læra af reynslu annarra. |
|
|
miðvikudagur, 18 febrúar 2009 |
|
Árshátíð FBSR verður haldin í skíðaskálanum í Hveradölum laugardaginn 7. mars nk.
Samkvæmið hefst með fordrykk í húsi FBSR kl 17:30 og svo kl 18:30 mun rúta flytja mannskapinn í skíðaskálann. Þar verður boðið upp á glæsilega 3 rétta máltíð að hætti skíðaskálans. Veislustjóri kvöldsins er okkar eina sanna Sveinborg og mun hún sjá um að halda stemningunni uppi.
Úrslit ljósmyndasamkeppninnar verða tilkynnt og B1 og B2 munu sýna hvað í þeim býr með frábærum skemmtiatriðum. DJ Automan og DJ Mooserwirt sjá svo til þess að dansgólfið verði heitt í lok kvöldsins.
Þema kvöldsins er ofurhetjubjörgunarþema og verða veitt verðlaun fyrir bestu túlkunina. Rúta mun svo flytja fólkið í 101 í lok kvölsins.
Miðaverð er aðeins 4500 og allt innifalið. Miðasala verður á Flugvallarvegi mánudaginn 2. mars og þriðjudaginn 3. mars frá kl. 19:00 og frameftir.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 64 - 72 af 227 |