|
Félagakvöld - fyrirlestur um háorkuáverka og ofkælingu |
|
mánudagur, 11 maí 2009 |
|
Athugið breytta dagsetningu!
Þriðjudagskvöldið 26.maí mun Lárus Petersen sjúkraflutningamaður og flubbi fjalla um háorkuáverka og ofkælingu. Lárus hefur starfað sem sjúkraflutningamaður lengi og hefur mikla reynslu í þeim málum. Fyrirlesturinn verður í fyrirlestrarsalnum á Flugvallarvegi og hefst kl 20.00.
|
|
|
miðvikudagur, 06 maí 2009 |
|
Núna um helgina ætlar Matti að fara með B1 á hvannadalshnjúk, tveimur vikum á undan áætlun. Helgast það af breytingum á dagskránni.
Áhugasamir hafi samband við Matta. |
|
|
miðvikudagur, 06 maí 2009 |
|
Nú er lokið síðustu hlaupaæfingu vetrarins og einstaklingsmiðað sumarprógrammið að hefjast. Það gengur þá útá það að hver og einn sér um sig en þó munu vafalaust einhverjir hittast og hlaupa frá Flugvallarveginum á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 18:15. |
|
|
þriðjudagur, 21 apríl 2009 |
|
Björgunarleikar verða haldnir samhliða landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Akureyri þann 16. maí.
Leikarnir verða með keppnisfyrirkomulagi og munu byrja kl. 8 eða 9 á laugardagsmorgni. Gert er ráð fyrir að þeim ljúki um kl. 16. Verkefnin verða innanbæjar á Akureyri en gert er ráð fyrir að liðin þurfi að keyra á milli pósta. 6-7 eru í hverju liði og þurfa þau að hafa almennan björgunarbúnað með. Nákvæmari búnaðarlisti verður sendur út þegar nær dregur.
Skipulagning Björgunarleikanna er að þessu sinni í höndum Súlna, Björgunarsveitarinnar á Akureyri. Miðað er við að verkefnin verði sem fjölbreyttust og endurspegli þau verkefni sem björgunarsveitir eru að leysa í dag. Á föstudagskvöldinu fær hvert lið afhenta möppu með dagskrá liðsins fyrir leikana ásamt reglum, korti o.fl. Það er svo á ábyrgð hvers liðs að mæta á réttum tíma í hvert verkefni.
Verkefnin verða 6-7 og miðað við að liðin hafi um klukkustund fyrir hvert verkefni, með ferða- og undirbúningstíma. Hugsanleg verkefni eru: fyrsta hjálp, rötun, leit, björgun, línuvinna, óveðurs- og bátaverkefni.
Markmið Björgunarleikana er skemmtun, reynsla og lærdómur. Við öll verkefnin verða leiðbeinendur sem munu gæta öryggis og leiðbeina hópunum ef þeir lenda í vandræðum með lausn verkefnisins. Hóparnir þurfa því ekki að kunna allt. |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 55 - 63 af 227 |