|
þriðjudagur, 25 ágúst 2009 |
|
Hefur þú hugleitt að snjór geti verið eitthvað annað en það sem er
fyrir manni í umferðinni? Gætir þú hugsað þér að stunda fjallamennsku,
jeppamennsku, vélsleða eða jafnvel fallhlífastökk? Ert þú þessi týpa
sem gætir hugsað þér að vera til taks þegar aðrir eru í neyð? Kannski
áttu þá erindi til okkar!
Þriðjudaginn 1. september og fimmtudaginn 3. september - kl 20 - verða haldnar nýliðakynningar í húsi sveitarinnar við Flugvallarveg.
Sjáumst!
|
|
|
þriðjudagur, 18 ágúst 2009 |
|
Föstudaginn 21.ágúst verður
Tiltektar-Haustfagnaður-FBSR þar sem allt verður gert skínandi hreint
og fínt fyrir veturinn. Það er ýmislegt sem þarf gera þannig að allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Mæting uppúr 5 í vinnugallanum, með hamarinn í annarri hendi og
bónklútinn í hinni. Veitingar í boði þegar verkefnalistinn verður
tómur.
Verkefnalistinn kemur á innranetið í vikunni. Ef einhver man eftir
einhverju sem hugsanlega leynist ekki á listanum þá sendið póst á
ritara sem kemur því áleiðis.
Absolút skyldumæting!
|
|
|
föstudagur, 14 ágúst 2009 |
|
Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verður haldinn mánudaginn 24.ágúst nk. kl. 20.00.
Fundarboð hefur verið sent út. Ef einhver félagi fær ekki fundarboð á næstu dögum eða ef einhver sem fær fundarboð óskar eftir að fá það ekki í framtíðinni þá vinsamlegast hafið samband við ritara - ritari[hja]fbsr.is
Athugið að aðalfundur er eingöngu fyrir félaga sveitarinnar.
Dagskrá aðalfundar:
1. Formaður setur fund.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
4. Endurskoðaður rekstrar og efnahagsreikningur 2008 og umræður um hann.
5. Inntaka nýrra félaga.
6. Hlé - Kaffiveitingar á vegum kvennadeildarinnar, kr. 1.000
7. Kosning formanns (til eins árs).
8. Kosning tveggja meðstjórnenda (árlega til tveggja ára).
9. Kosning tveggja varastjórnenda (til eins árs).
10. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
11. Önnur mál.
Við hvetjum alla félaga til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á þær ákvarðanir sem þar verða teknar. |
|
|
Hjólaferð um Lakagíga 14.-16.ágúst |
|
mánudagur, 10 ágúst 2009 |
|
Á vegum Flugbjörgunarsveitarinnar er stefnt að því að skreppa í þriggja daga trússaðan (lúxus) hjólatúr helgina 14.- 16.ágúst um svæðið í kringum Lakagíga á Síðu. Svæðið býr að mikilli náttúrufegurð, góðum malarvegum (að slepptum smá sandkafla á degi 2), lítilli bílumferð og nokkurs fjölda skála. Dagleiðir verða lengstar 68 km, en til gaman má geta að í Heiðmerkurtúr sveitarinnar snemmsumars fóru flestir vel yfir 40 km á einni kvöldstund. |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 46 - 54 af 227 |