|
Björgunarstörf í náttúruhamförum - ráðstefna |
|
mánudagur, 16 nóvember 2009 |
|
Í tilefni 40 ára starfsafmælis Hjálparsveitar skáta Garðabæ efnir sveitin til ráðstefnu og pallborðsumræðna um náttúruöflin á Íslandi og hvernig björgunaraðilar geti búið sig undir hjálparstarf á hamfarasvæðum. Fengnir hafa verið færustu sérfræðingar á sínu sviði til að fjalla um málefnið. Ráðstefnan fer fram laugardaginn 21. nóvember í hátíðarsal Jötunheima, húsnæðis Hjálparsveitar skáta Garðabæ við Bæjarbraut.
Ármann Höskuldsson og Hörður Már Harðarson stýra ráðstefnunni og Jón Gunnarsson alþingismaður stýrir pallborðsumræðum.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 11 nóvember 2009 |
Sleðamessa
björgunarsveitanna verður laugardaginn 14. nóvember í húsi
Björgunarsveitar Hafnarfjarðar að Flatahrauni 14, 220 Hafnarfirði.
Björgunarsveitarmenn eru hvattir til að kynna sér dagskrá sleðamessunar
en margir áhugaverðir fyrirlestrar eru í boði. Á sunnudeginum 15.
nóvember verður síðan sleðamessa fyrir almenning þar sem eru
einnig erindi sem eru áhugaverð fyrir björgunarsveitarmenn. |
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 04 nóvember 2009 |
|
Föstudaginn 6. nóvember hefst sala á Neyðarkallinum og stendur til sunnudagsins 8.nóvember.
Vill stjórnin hvetja alla sem vetlingi geta valdið til þess að taka þátt í sölunni en hún er í dag mjög góð fjáröflun fyrir sveitina.
Til fjölskyldna og vinnufélaga má byrja að selja fimmtudaginn 3. nóvember, hægt að nálgast kalla á Flugvallarvegi á miðvikudagskvöldið frá 20 til 22.
Upplýsingar um vaktaplan og annað voru sendar til allra á fréttabréfslistanum í fyrradag en einnig er hægt að nálgast það á innri vefnum eða hjá Stefáni Gjaldkera, 844-4643, gjaldkeri # fbsr.is
 |
|
|
Leitarsvið - fyrsta hjálp |
|
þriðjudagur, 03 nóvember 2009 |
|
Í kvöld, þriðjudaginn 3. nóvember kl. 20 ætlar leitarsvið að hittast og
skerpa á fyrstu hjálpinni. Allir velkomnir.
Minni einnig á samæfingu leitarhópa næsta mánudag, 9. nóvember kl. 19,
en hún er í umsjón Ársælinga. Þema æfingarinnar verður slóðaleit og
fyrsta hjálp.
Kveðja
Leitarsvið - EVM
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 28 - 36 af 227 |