|
mánudagur, 23 ágúst 2010 |
|
Hefur þú hugleitt að snjór geti verið eitthvað annað en það sem er fyrir manni í umferðinni? Gætir þú hugsað þér að stunda fjallamennsku, jeppamennsku, vélsleða eða jafnvel fallhlífastökk? Ert þú þessi týpa sem gætir hugsað þér að vera til taks þegar aðrir eru í neyð? Ert þú 18 ára á árinu eða eldri? Kannski áttu þá erindi til okkar!
Nýliðakynningar Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verða haldnar þriðjudaginn 31. ágúst og fimmtudaginn 2. september kl. 20.00 í húsnæði sveitarinnar við Flugvallarveg. |
|
|
Opið hús á Menningarhátíð 21.ágúst |
|
miðvikudagur, 18 ágúst 2010 |
|
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er 60 ára í ár. Í tilefni af afmælinu stendur mikið til. Ævintýrið byrjar á Menningarhátíð Reykjavíkurborgar laugardaginn 21. ágúst n.k. milli kl. 13:00 og 18:00. |
|
Lesa meira...
|
|
|
föstudagur, 28 maí 2010 |
|
Aðalfundur FBSR var haldinn 27.maí 2010. Fundurinn var vel sóttur en alls sátu hann hátt í 70 félagar ásamt nýliðum. Fyrir utan venjuleg aðalfundastörf voru ýmis mál rædd undir liðnum Önnur mál og fundi var ekki slitið fyrr en rétt fyrir miðnætti. Á fundinum gengu 15 mjög efnilegir nýliðar inn í sveitina.
Elsa Gunnarsdóttir mun áfram sinna formennsku sveitarinnar. Stefán Þór Þórsson, Elsa Særún Helgadóttir og Jón Svavarsson sitja áfram í stjórn á komandi starfsári. Ásgeir Sigurðsson, Guðbjörn Margeirsson og Guðmundur Arnar Ástvaldsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og þakkar sveitin þeim vel unnin störf. Þeirra í stað koma nýjir inni í stjórn Marteinn Sigurðsson, Agnes
Svansdóttir og Magnús Þór Karlsson.
|
|
|
Aðalfundur FBSR 27. maí kl. 20.00 |
|
laugardagur, 22 maí 2010 |
|
Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 27.maí nk. kl. 20.00.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstaða 1 - 9 af 227 |