Nemendur á seinna ári kallast B2, eða byrjendahópur á öðru ári. Þá er mestum hluta af grunn námskeiðum lokið og námið orðið mun meira verklegt í formi fjallaferða og þjálfunar í vetrarfjallamennsku og stjórnun björgunartækja.
Í B2 er námið einnig orðið öllu frjálslegra. Meira er um að nýliðar velji sér sérsvið eftir áhuga og þeir eru byrjaðir að starfa í hópum sveitarinnar í mun meira mæli en í B1. Reynt er að haga stundaskrá þannig að öllum námskeiðum sé lokið fyrir byrjun fjórðu annar og teljast nýliðar þá fullgildir sem "Björgunarmaður 2" samkvæmt skilgreiningu Björgunarskólans. Það þýðir að nýliðar geta tekið meiri þátt í útköllum, þó svo þeir teljist ekki "inngengnir", þ.e. fullgildir meðlimir Flugbjörgunarsveitarinnar. Það gerist á aðalfundi sem vanalegast er haldinn í maí.
Fram að þeim tíma er tekinn lokahnykkurinn í fjallamennskuþjálfun og stjórnun björgunartækja. Mætingarskylda er 80% eftir sem áður.
Námskeið B2
Námskeið í B2 eru vanalegast kennd í þessari röð sem taflan hér að neðan sýnir. Athugið að mikill hluti námsins er í formi þjálfunarferða sem ekki birtast í þessari töflu. Þessi uppröðun getur breyst lítillega frá ári til árs.
Önn 3
| September | Fyrsta hjálp 2 |
| Október | Stjórnun björgunartækja |
| Nóvember | Fjallamennska 2 og undirbúningur |
Önn 4
Formlegum námskeiðum lokið. Við tekur vetrarfjallamennskuþjálfun, stjórnun björgunartækja o.fl. Ferðir t.d. á Hvannadalshnjúk, Eyjafjallajökul eða sambærilega tinda.
Byrjendahópur fyrra ár (B1)