|
Nemendur á fyrra ári kallast B1, eða byrjendahópur á fyrra ári. Í B1 er meiri áhersla lögð á bókleg og verkleg námskeið heldur en á seinna árinu. Með öðrum orðum er minna um ferðir, klifur, skíðamennsku o.þ.h. heldur en á seinna árinu. Í lok B1 öðlast nýliðar viðurkenningu sem "Björgunarmaður 1" samkvæmt skilgreiningu Björgunarskólans og geta þar með sinnt ákveðnum "léttari" tegundum útkalla. Að auki byrja nýliðar þá að starfa í hópum innan sveitarinnar. Auk námsins öðlast nýliðar góða þjálfun í almennri ferðamennsku til fjalla og mæta vikulega í líkamsrækt, þannig að stundaskráin er nokkuð þéttari en hér gefur á að líta. Mætingarskylda er 80%
Námskeið í B1
Námskeið í B1 eru vanalegast kennd í þessari röð sem taflan hér að neðan sýnir. Auk námskeiðanna bætast við fjallaferðir sem ekki eru taldar upp hér. Athugið að þessi uppröðun getur breyst lítillega frá ári til árs.
Önn 1
| September |
Almenn ferðamennska:
-Matur á fjöllum
-Fatnaður á fjöllum
-Búnaður á fjöllum
-Fjarskipti
Rötunarnámskeið, bókleg og verkleg | | Október | Fyrsta hjálp 1
Björgunarmaður í aðgerðum
Grunnnámskeið í leitartækni | | Nóvember | Næturrötun
Slöngubátar
Veðurfræði til fjalla |
Önn 2
| Janúar |
Snjóhús og Skýli
Mat á snjóflóðahættu
-bóklegt námskeið
-verklegt námskeið
Undirbúningur fyrir vetrarfjallamennsku | | Febrúar | Fjallamennska 1
FBSR 1
Ísklifur | | Mars | Félagabjörgun í klifri
Aðkoma að flugslysi
Þverun straumvatna | | Apríl/maí |
Klettaklifur
|
Byrjendahópur seinna ár (B2)
|
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 18 ágúst 2007 )
|